Snjór um víða veröld
Mikið verður viðhaft
næstkomandi sunnudag, 22. janúar, á öllum helstu skíðasvæðum Íslands. Þá taka Skíðasamband Íslands,
skíðafélögin og skíðasvæðin höndum saman um þátttöku í átaki Alþjóða skíðasambandsins,
FIS, um að tileinka einn dag á vetri hvatningu til aukinnar skíðaiðkunnar barna. „World Snow Day“ er nú haldinn í fyrsta sinn um allan heim og
hér á landi undir yfirskriftinni „Snjór um víða veröld“. Af þessu tilefni verður ókeypis á skíðasvæðin
á sunnudag fyrir 12 ára og yngri og á skíðavæðunum í Hlíðarfjalli, Dalvík, Ólafsfirði, Siglufirði, Tindastóli,
Stafdal og Oddsskarði verður frítt fyrir alla þennan dag.
Ástralskt lið
skipað leikmönnum í úrtökuliði fyrir ástralska kvennalandsliðið í íshokkí var hér í hálfs mánaðar
æfingabúðum á dögunum. Liðið hélt rakleiðis til Akureyrar þar sem hópnum var komið fyrir á heimilum norðlenskra leikmanna
en eyddi síðustu fimm dögunum í Reykjavík og nutu gestrisni Sunnlendinga.


