Ársfundur NASAA og samtaka íslenskra skíðasvæða
Fyrir skömmu var haldinn á Sauðárkróki ársfundur NASAA sem eru samtök skíðasvæða á Íslandi og í Skotlandi.
Þetta er í annað skipti sem ársfundur samtakanna er haldinn hér á landi. Við þetta tækifæri var jafnframt haldinn fundur Samtaka
skíðasvæða á Íslandi og tók Magnús Árnason, framkvæmdastjóri skíðasvæða
höfuðborgarsvæðsins við formennsku við það tækifæri. Hann segir bæði mikils virði fyrir skíðasvæðin á
Íslandi að hafa með sér gott samstarf og ekki síður ávinning af samstarfinu við Skotana.
„Þó í hugum fólks sé Skotland ekki fyrsta landið sem kemur upp þegar rætt er um skíðasvæði þá eru
mörg slík þar í landi. Og þær aðstæður sem þeir búa við eru á margan hátt mjög hliðstæðar
því sem við þekkjum hér heima," segir Magnús.
Á ársfundinum á Sauðárkróki voru einnig gestir skíðasvæði í Svartaskógi í Þýskalandi og þannig
segir Magnús að reynt sé að nýta þennan vettvang til þekkingarmiðlunar. Á ársfundi samtakanna hafa einnig komið fulltrúar
framleiðenda lyftubúnaðar, miðasölukerfa og annars búnaðar sem nútíma skíðasvæði þurfa á að halda.
„Aukin tengsl eru af hinu góða og við nýtum þetta til að skoða sameiginlega tækni- og rekstrarlausnir, miðla þekkingu á milli og
ræða þau atriði sem brenna á okkur hverju sinni. Í Skotlandi eru veðuraðstæður mjög áþekkar okkar, þeir glíma
við rokið, hitasveiflur og fleira sem við þekkjum vel. Nær öll svæðin í Skotlandi eru reyndar einkarekin en að öðru leyti eru þau
mjög áþekk okkar svæðum. Skotarnir voru áður í samtökum með skíðasvæðum í Frakklandi en töldu sig eiga mun
meira sameiginlegt með okkur Íslendingum og þannig urðu NASAA samtökin til," segir Magnús en á fundinum á Sauðárkróki var
rætt um að starfsmenn geti farið milli svæða í löndunum og kynnt sér sér þau.
Metnaður á skíðasvæðunum
„Staða íslenskra skíðasvæða er að mínu mati nokkuð góð. Það er verið að setja upp snjóframleiðslu á
nokkrum svæðum og mörg svæði komin nú þegar með ágæt kerfi. Reynslan af snjóframleiðslunni er á öllum stöðum
mjög góð. Nægir þar að benda á að hvað fjölda opnunardaga varðar þá er lakasti veturinn í Hlíðarfjalli eftir
að framleiðslukerfið kom betri en sá besti fyrir tíma snjóframleiðslunnar. Það sem hins vegar er aðkallandi er að snjóframleiðslu
verði komið upp í Bláfjöllum til að treysta grundvöll þess svæðis. Þetta atriði snertir mjög hag annarra
skíðasvæða því ef við missum nýliðunina í skíðamennskunni niður á höfuðborgarsvæðinu þá
kemur hnignun í skíðamennskuna almennt á landinu. Þetta hefur því áhrif og er hagsmunamál allra svæðanna," segir
Magnús.
Ellefu skíðasvæði eru á landinu og segir Magnús mikinn metnað ríkjandi að gera sífellt betur. „Allir eru að horfa til frekari
uppbyggingu, sama hvert horft er. Menn eru að horfa fram í tímann og vilja ná lengra. Enda er þetta sport fjölskyldufólksins og raunar ekki dýrt
sport samanborið við margt annað," segir Magnús.
Ívar Sigmundsson heiðraður
Á ársfundi Samtaka skíðasvæða var Ívar Sigmundsson, fyrrverandi forstöðumaður skíðasvæðisins í
Hlíðarfjalli, gerður að heiðursfélaga Skíðasvæða á Íslandi en um leið fyrsti heiðursfélagi NASAA. Ívar er vel
að þessu kominn enda einn af helstu frumkvöðlum á þessu sviði undanfarna áratugi og ötull talsmaður uppbyggingar skíðasvæða
landsins.




