Vetraríþróttamiðstöð Íslands

Vetraríþróttamiðstöð Íslands

Fréttir

Alþjóðlegt krullumót á Akureyri í sjötta skipti

Vetraríþróttamiðstöð Íslands hefur stutt við starfsemi Krulludeildar Skautafélags Akureyrar, aðallega í tengslum við búnað og aðstöðu. Krulludeildin hefur haldið alþjóðlegt mót, Ice Cup, árlega frá 2004 og dagana 30. apríl til 2. maí 2009 fór mótið fram í sjötta skiptið.



 Á myndinni eru (frá vinstri): Ágúst Hilmarsson, Árni Arason, Jón S. Hansen (fyrirliði sigurliðsins), Árni Ingólfsson og Sigurgeir Haraldsson.



Mótið er orðið að föstum lið í dagatali krullufólks og sem lokapunktur á keppnistímabilinu hér. Tólf lið með rúmlega 50 keppendur innanborðs tóku þátt að þessu sinni. Flestir keppendur komu úr röðum Krulludeildar SA en vegna efnahagsástands í heiminum var eftirspurn að utan lítil þetta árið og hafa erlendir keppendur aldrei verið færri, aðeins tveir. Reyndar kom annar þeirra alla leið frá Alaska og hinn frá Tennessee. Gestirnir fengu tvo heimamenn í lið með sér. Sigurvegarar urðu Skytturnar, Mammútar urðu í öðru sæti og Riddarar í þriðja sæti en öll þessi lið eru frá Akureyri.


empty

Mynd augnabliksins

thtr7524.jpg
Eljagangur

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn