Skálabraut viðbót á byrjendasvæði Hlíðarfjalls
miðvikudagur 19.janúar 2011 - Lestrar 21
Sjöunda lyftan á
skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli, Skálabraut, var tekin í notkun síðastliðinn laugardag. Lyftan er á byrjendasvæðinu,
liggur samsíða Hólabraut og kemur til með að nýtast byrjendum mjög vel. Um er að ræða diskalyftu, 355 metra að lengd og getur hún
annað 700 manns á klukkustund á fullum afköstum. Framkvæmdir við lyftuna hófust í byrjun september og gengu þær vel.



