Vetraríþróttamiðstöð Íslands

Vetraríþróttamiðstöð Íslands

Fréttir

Erna valin Íþróttakona ÍF 2010

Erna Friðriksdóttir, skíðakona frá Egilsstöðum hefur verið útnefnd íþróttakona Íþróttasambands fatlaðra árið 2010. Erna er 23 ára gömul frá skíðafélaginu í Stafdal.

Erna varð á árinu fyrst Íslendinga til að tryggja sér þátttökurétt í alpagreinum á vetrarólympíuleikum fatlaðra sem fram fóru í Kanada í mars. Hún er öflug skíðakona og stundar æfingar af kappi í Winterpark í Colorado í Bandaríkjunum þar sem hún nýtur leiðsagnar Scott Olson.
Þess má geta að Erna var einnig valin Íþróttamaður ÚÍA á Egilsstöðum árið 2009.



empty

Mynd augnabliksins

thtr7158.jpg
Eljagangur

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn