Mammútarnir komnir með tvo sigra á EM í krullu
Landslið Íslands í krullu tekur
þessa vikuna þátt í Evrópumeistaramóti í greinni sem fram fer í Aberdeen í Skotlandi. Liðið er skipað íslandsmeisturum
í greininni hér á landi, Mammútum frá Akureyri og þar eru innanborðs þeir Haraldur Ingólfsson, Jón Ingi
Sigurðsson, Jens Kristinn Gíslason, Ólafur Freyr Númason og Sveinn H Steingrímsson Liðið spilar
í B-deild EM og hefur þar unnið Slóvakíu og Hvíta-Rússland en tapað fyrir Ungverjalandi, Króatíu og Belgíu.
Á þessari stundu vantar liðið einn sigur til að tryggja áframhaldandi sæti í B-grúppu en mótinu lýkur um næstu helgi.
Landslið Íslands í krullu tekur þessa vikuna þátt í Evrópumeistaramóti í greinni sem fram fer í Aberdeen í Skotlandi.
Liðið er skipað íslandsmeisturum í greininni hér á landi, Mammútum frá Akureyri og þar eru innanborðs þeir Haraldur
Ingólfsson, Jón Ingi Sigurðsson, Jens Kristinn Gíslason, Ólafur Freyr Númason og Sveinn H
Steingrímsson Liðið spilar í B-deild EM og hefur þar unnið Slóvakíu og Hvíta-Rússland en tapað fyrir
Ungverjalandi, Króatíu og Belgíu. Á þessari stundu vantar liðið einn sigur til að tryggja áframhaldandi sæti í
B-grúppu en mótinu lýkur um næstu helgi.
Krulla er með yngri íþróttagreinum hér á landi og eingöngu spiluð á Akureyri. Íslendingar hafa einu sinni áður keppt á
Evrópumeistaramóti í krullu en auk þess farið erlendis og spilað á heimsmeistaramóti eldri leikmanna, minni mótum eða í
heimsóknum hjá vinaklúbbum. Hallgrímur Valsson er einn af þeim u.þ.b. 50 manna hópi sem æfir krullu að jafnaði á Akureyri og segir
hann greinina henta öllum aldurshópum.
„Krulla hentar fólki á öllum aldri og það er mikill áhugi á greininni. Okkar vandi er hins vegar takmörkuð aðstaða, sem getur
orðið til þess að við gefumst upp á krulluíþróttinni. Við æfum tvö kvöld í viku í Skautahöllinni á
Akureyri og það tekur okkur um 40 mínútur í hvert sinn að gera svellið klárt til æfinga. Krulla fer illa saman við notkun í venjulegri
skautahöll eins og við höfum hér og ef þessi íþrótt á að lifa og vaxa þá verður hún að fá sérstakan
sal með svelli sem ekki er notað í annað. Við finnum því mikinn mun þegar við komum í alvöru krulluís erlendis," segir
Hallgrímur sem spilaði á dögunum í Helsingborg þar sem hann var á ferð. Hann segir ólíku saman að jafna að spila í
sérhönnuðum krulluhúsum. „En sem dæmi um áhugann sem er á þessari íþrótt hér þá eru 10 lið í
Helsingborg sem spila en hér á Akureyri höfum við 8 lið sem æfa og spila að jafnaði. En vegna aðstöðuleysis höfum við ekki enn getað
hafið unglingastarf, sem er einn þáttur í að geta eflt íþróttina enn frekar. “
Krulla á rætur hér á landi til ársins 1996 þegar hingað voru gefnir steinar frá Kanada. Þar með varð Ísland 25
þjóðin í þessu sporti og þar með var hægt að skrá krullu sem löglega ólympíugrein. „Krulla er vinsæl og vaxandi
íþrótt út um allan heim og við erum bara á fyrstu metrunum í þessu. En vonandi kemur að því einhvern tíma í
framtíðinni að við náum inn á Ólympíuleikana í krullu. En til þess þurfum við árangur á bæði
heimsmeistara- og evrópumeistaramótum þannig að vegurinn er langur,“ segir Hallgrímur.
Heimasíða Mammútana á EM í Aberdeen:
http://mammothcurling.blogspot.com/



