Mikil þátttaka í skíðanámskeiði fyrir fatlaða
fimmtudagur 26.febrúar 2009 - Lestrar 92
Námskeið Íþróttasambands
fatlaðra og Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands í samstarfi við NSCD í Winter Park fór fram í Hlíðarfjalli dagana
13. - 15. febrúar. Námskeiðið var fullbókað en þátttakendur voru um tuttugu, m.a. hreyfihamlaðir, blindir og sjónskertir.Hreyfihamlaðir þátttakendur fengu sérhannaða skíðasleða til afnota og gátu valið um sleða með tveimur eða einu skíði. Þrír þátttakendur komu frá endurhæfingardeild Grensás þar sem þeir hafa notið endurhæfingar eftir slys. Aðalleiðbeinandi var Beth Fox, forsvarsmaður NSCD í Winter Park (National Sport Center for disabled). Auk hennar var leiðbeinandi Herbert Wintel frá Þýskalandi og kona hans Hannelore. Herbert er fatlaður skiðamaður sem hefur byggt upp vetraríþróttir fyrir fötluð börn og unglinga í Þýskalandi og hefur m.a. þjálfað Breka Arnarsson, ungan og efnilegan skíðamann sem bjó erlendis en er nú aftur kominn til Akureyrar.
Markmiðið er að þjálfa íslenska leiðbeinendur á þessu sviði og var áhersla lögð á ráðgjöf og aðstoð við aðstoðarfólk, jafnt skíðakennara, þjálfara, sem aðstandendur.
Námskeiðið gekk mjög vel og allir þátttakendur tóku virkan þátt í dagskránni með aðstoð leiðbeinenda og aðstoðarfólks. Alls var hópur fatlaðra þátttakenda, aðstandenda, leiðbeinenda og aðstoðarfólks um 60 manns.
Þátttakendur komu frá Reykjavík og nágrenni, Selfossi, Akureyri, Ísafirði, Egilsstöðum og Húsavík.
Áhugavakning hjá fötluðum á skíðamennskunni
Guðný Bachman, sem sæti á í vetraríþróttanefnd
Íþróttasambands fatlaðra, segir að áhuginn á námskeiðinu hafi farið fram úr öllum vonum og vitni um mikla áhugavakningu
hjá fötluðum á skíðamennsku.„Við höfum einbeitt okkur að skíðamennsku fatlaðra undanfarin 9 ár en þá var fyrsta námskeiðið haldið hér á landi. Þá mættu að mig minnir sex þátttakendur. Síðan voru námskeið haldið árin 2006, 2008 og loks nú í febrúar. Þátttakendum hefur jafnt og þétt verið að fjölga og má segja að færri hafi komist að en vildu á nám,“ segir Guðný en öll voru námskeiðin haldin í Hlíðarfjalli.
Tilgang þessa starfs segir Guðný vera þann að auka almenna þátttöku fatlaðra í skíðaíþróttinni og stuðla um leið að því að fatlaðir einstaklingar æfi reglubundið og taki þátt í skíðamótum. Það takmark hefur einnig náðst því nú æfa þrír fatlaðir einstaklingar reglulega, auk þess sem fatlaðir ungir skíðakrakkar tóku þátt í Andrésar Andarleikunum í Hlíðarfjalli í fyrsta sinn nú í vor. Guðný segir þessa þróun mikið fagnaðarefni.
„Miðað við þann áhuga sem við sáum nú í vetur þá þurfum við að fara að huga að kennslu fyrir leiðbeinendur þannig að við getum betur fylgt þróuninni eftir. Þátttakendur á námskeiðinu hjá okkur að þessu sinni voru á öllum aldri, allt frá 9 ára aldri að sextugu. Af því má sjá hversu breiður hópur þetta er og ég tel að skíðasvæðin geti eflt þennan þátt verulega með því að bjóða upp á aðstöðu og leiðbeiningar fyrir fatlaða," segir Guðný.
Höfum staðið nágrannaþjóðunum að baki
Aðeins er tímaspursmál að mati Guðnýjar hvenær sá dagur rennur upp að fatlaður skíðamaður verði þátttakendur í Skíðalandsmóti Íslands. „Skíðamennska fatlaðra er mjög þekkt erlendis og í raun höfum við Íslendingar staðið öðrum að baki hvað þetta varðar fram til þessa. En mér sýnist ljóst að áhuginn hefur heldur betur kviknað og það er mikið ánægjuefni. Við bíðum því spennt að sjá hvernig þetta þróast áfram en við höfum mikinn áhuga á að efna til næsta námskeiðs strax næsta vetur og halda þannig áfram á sömu braut," segir Guðný Bachman.
Myndir frá námsskeiðinu



