Ísland og Skotland í nýjum samtökum skíðasvæða
þriðjudagur 05.ágúst 2008 - Lestrar 83
Samtök skíðasvæða við
Norður-Atlantshaf, NASAA, voru formlega stofnuð vorið 2008 með þátttöku Skíðasambands Íslands og Skíðasambands Skotlands. Í
þessum löndum tveimur eru samanlagt 17 skíðasvæði, 12 á Íslandi og 5 í Skotlandi. Áætlað er að 350.000 gestir heimsæki
skíðasvæðin árlega.Meginmarkmið með stofnun samtakanna er að efna til reglulegra funda og miðla reynslu, upplýsingum og hugmyndum. Fyrsti fundur samtakanna var haldinn á Íslandi í ágúst 2008 og tóku um 40 manns þátt í honum. Auk þess komu til fundarins fulltrúar tækjaframleiðenda til að kynna nýjungar. Meðal þess sem til umfjöllunar var að fundinum voru aðgangsmiðakerfi á skíðasvæðum, snjóframleiðslubúnaður, sumarverkefni á skíðasvæðum og fleira.
Ætlunin er að efna til næstu ráðstefnu árið 2009 í Skotlandi.



