Vetraríţróttamiđstöđ Íslands

Vetraríþróttamiðstöð Íslands

Fréttir

Skíđaganga innanhúss á Vetraríţróttahátiđ ÍSÍ um komandi helgi


„Ég vil eindregið hvetja fólk til að nota tækifærið á næstu vikum og fylgjast með viðburðum á Vetraríþróttahátíð ÍSÍ því af nógu er að taka af skemmtilegum keppnum og öðrum atriðum. Setningarhelgin tókst frábærlega vel og gaf tóninn fyrir það sem koma skal,“ segir Viðar Sigurjónsson, starfsmaður ÍSÍ, um upphaf Vetraríþróttahátíðar ÍSÍ sem sett var á Akureyri um liðna helgi. Á setningarathöfnina í Skautahöllinni mættu um 700 manns og þar voru m.a. Ólympíufarar Íslands kynntir. Eftir setningarathöfnina voru síðan skemmtilegir íshokkíleikir sem fjöldi fólks fylgdist með og á laugardag og sunnudag fór fram bikarmót í Hlíðarfjalli. „Þar fengu Olympíufararnir okkar góða auglýsingu og luku formlega sínum undirbúningstíma fyrir leikana," segir Viðar.


Um komandi helg verður mikið um að vera. Meðal dagskráratriða verður skíðagöngukeppni innanhúss! Hún verður í verslunarmiðstöðinni Glerártorgi kl. 13.
„Af mörgum áhugaverðum atriðum í dagskrá helgarinnar get ég ekki staðist freistinguna að nefna skíðagöngukeppnina á Glerártorgi. Það verður einstakur viðburður og sannarlega frumleg hugmynd. Eitt er að láta sér detta þetta í hug en annað að hrinda svona viðburði í framkvæmd og ég er mjög spenntur.  Trúi ekki öðru en þarna verði fjölmenni að fylgjast með. En almennt séð er um að gera fyrir fólk að fylgjast með dagskránni á hátíðinni næstu vikur og nýta sér þá viðburði sem í boði verða því með hátíðinni viljum við hjá ÍSÍ efla almennan áhuga á vetraríþróttum og sýna fram á fjölbreytni þeirra,“ segir Viðar.

Af öðrum viðburðum um komandi helgi verður sýningin Vetrarsport í Boganum, vélsleðaspyrna við Skautahöllina og  skíðanámskeið fatlaðra í Hlíðarfjalli,

Dagskrá Vetraríþróttahátíðar ÍSÍ



empty

Mynd augnabliksins

thtr7143.jpg

Teljari

Í dag: 2
Samtals: 2707

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn