Tvö skíðanámskeið fyrir fatlaða á næstunni
mánudagur 24.janúar 2011 - Lestrar 35
Framundan eru tvö skíðanámskeið
fyrir fatlaða í Hlíðarfjalli sem að standa Íþróttasamband fatlaðra, Vetraríþróttamiðstöð Íslands og
Hlíðarfjall í samstarfi við Winter Park, Colorado. Námskeiðin verða haldin dagana 18.-20 febrúar annars vegar og hins vegar 4. - 6. mars.Sama fyrirkomulag er á báðum námskeiðunum, þ.e. að á föstudag kl. 12.30 er mæting í Hlíðarfjall, kynning og farið yfir helstu atirði með einstaklingum. Á laugardag og sunnudag eru síðan verklegar æfingar og fræðsla. Lokaáfangi námskeiðanna er síðan fundur kl. 15.40-16 á sunnudag.
Markhópur á námskeiði 18. – 20. febrúar 2011
Fötluð börn og unglingar sem geta notað hefðbundin skíði en þurfa séraðstoð.
Markmið er að þau geti í kjölfarið sótt almenn skíðanámskeið
Skíðaþjálfarar, leiðbeinendur sem vilja fá ráðgjöf á þessu sviði
Aðalleiðbeinandi verður Beth Fox frá Winter Park, Colorado.
Hámarksfjöldi; 15 þátttakendur - Námskeiðsgjald kr. 12.500
Nánari upplýsingar veita;
Elsa Skúladóttir 8642062 elsa@saltvik.is og Þröstur Guðjónssona 896 1147 sporri@internet.is
Staðfesta þarf skráningu fyrir 10. febrúar á netfangið; annak@isisport.is
Markhópur á námskeiði 4. – 6. mars 2011
Notendur skíðasleða Bi ski og monoski
Skíðaþjálfarar / leiðbeinendur sem vilja kynna sér þessi tæki
Íslenskir leiðbeinendur aðstoða þá sem vilja prófa Bi ski eða monoski
Hámarksfjöldi; 10 þátttakendur - Námskeiðsgjald kr. 12. 500.-
Nánari upplýsingar veita;
Elsa Skúladóttir 8642062 elsa@saltvik.is og Þröstur Guðjónsson 896 1147 sporri@internet.is
Staðfesta þarf skráningu á námskeiðið í mars fyrir 20. febrúar á annak@isisport.is
Námskeiðsgjöld á bæði námskeiðin innifela lyftukort, súpu í hádegi, kennslu og ráðgjöf.
Skíðasleðar verða til útláns og sérkjör verða á leigu af öðrum skíðabúnaði sé þörf á slíku.
Sérkjör á gistingu; www.ongulsstadir.is / hrefna@ongulsstadir.is






