Vetraríþróttamiðstöð Íslands
Vel heppnaður Éljagangur
Vetrarhátíðinni Éljagangur lauk í
gær en hátíðin hófst sl. fimmtudag. Hátíðin heppnaðist í alla staði vel þrátt fyrir að veðrið hafi gert
skipulaginu erfitt fyrir á stundum með hitatölum og þó nokkru hvassviðri á köflum. Mikil stemning skapaðist á Ráðhústorgi
alla helgina þar sem snjóbrettakappar léku list sínar við hlið Frosta snjókalls. Mikil aðsókn var á
skíðagöngunámskeiðið, sleðaspyrnuna, ískrossið og á Vetrarsportsýninguna í Boganum og margir tóku þátt í
fjölmörgum ferðum sem í boði voru á meðan hátíðinni stóð.
Þétt dagskrá á Éljagangi um næstu helgi
vetrarhátíðin Éljagangur 2012 á Akureyri en hún er fastur liður í vetrarafþreyingu í bænum. Að hátíðinni
standa EY-LÍV félag vélsleðamanna í Eyjafirði, Akureyrarstofa, KKA akstursíþróttafélag,
Vetraríþróttamiðstöð Íslands, Hlíðarfjall, Skíðafélag Akureyrar og Ungmennafélag Akureyrar. Hátíðin
stendur í fjóra daga en dagskrárliðir hennar eru í Hlíðarfjalli, á Akureyri og víðar á Norðurlandi.
Snjór um víða veröld
næstkomandi sunnudag, 22. janúar, á öllum helstu skíðasvæðum Íslands. Þá taka Skíðasamband Íslands,
skíðafélögin og skíðasvæðin höndum saman um þátttöku í átaki Alþjóða skíðasambandsins,
á sunnudag fyrir 12 ára og yngri og á skíðavæðunum í Hlíðarfjalli, Dalvík, Ólafsfirði, Siglufirði, Tindastóli,
Stafdal og Oddsskarði verður frítt fyrir alla þennan dag.
Ástralskt íshokkílið í heimsókn
skipað leikmönnum í úrtökuliði fyrir ástralska kvennalandsliðið í íshokkí var hér í hálfs mánaðar
æfingabúðum á dögunum. Liðið hélt rakleiðis til Akureyrar þar sem hópnum var komið fyrir á heimilum norðlenskra leikmanna
en eyddi síðustu fimm dögunum í Reykjavík og nutu gestrisni Sunnlendinga.
Ársfundur NASAA og samtaka íslenskra skíðasvæða
Fyrir skömmu var haldinn á Sauðárkróki ársfundur NASAA sem eru samtök skíðasvæða á Íslandi og í Skotlandi.
Þetta er í annað skipti sem ársfundur samtakanna er haldinn hér á landi. Við þetta tækifæri var jafnframt haldinn fundur Samtaka
skíðasvæða á Íslandi og tók Magnús Árnason, framkvæmdastjóri skíðasvæða
höfuðborgarsvæðsins við formennsku við það tækifæri. Hann segir bæði mikils virði fyrir skíðasvæðin á
Íslandi að hafa með sér gott samstarf og ekki síður ávinning af samstarfinu við Skotana.