Í Hlíðarfjalli er nú ágætis skíðafæri í þeim
brekkum sem nú eru opnar að sögn Guðmundar Karls Jónssonar, staðarhaldara á
svæðinu. Hann segir að snjóvélarnar hafi sannað sig, sérstaklega um og eftir
þær miklu umhleypingar sem urðu rétt fyrir jól. "Þær skíðaleiðir sem eru opnar
eru mjög góðar. Við höfum framleitt snjó í þessar brekkur, en ef við hefðum
ekki snjóframleiðsluvélarnar væri allt lokað. Snjógirðingar sem settar voru upp
hjá göngubrautinni hafa einnig reynst mjög vel og því má segja að þær
framkvæmdir sem unnið var að síðastliðið sumar hafi nú þegar sannað sig.".jpg)
Guðmundur segir að það sé vert að hafa í huga að frá árinu 1980 og til dagsins í dag þá eru flestir skíðadagar í fjallinu eftir miðjan janúar og fram eftir vetri. "Við opnuðum í nóvember og skíðafærið var mjög gott í nóvember og desember, allt þangað til hlákan kom um miðjan jólamánuðinn. Reynsla síðustu ára hefur samt verið sú að það hefur ekki komið neinn snjór að ráði fyrr en í lok janúar og byrjun febrúar svo við vorum langt á undan þeim áætlunum. Það er opið hjá okkur og það sem gildir er að halda sér í þeim brekkum sem við erum með opnar, þær eru troðnar og bjóða upp á gott skíða- og brettafæri."