6. desember 2007

 

Hlíðarfjall opnar í dag

Nú er skíðaveturinn hafinn af fullum krafti í Hlíðarfjalli á Akureyri. Opnað verður fyrir almenning í dag klukkan 17, í lyfturnar Fjarkann, Auði og Stromplyftu. Aðrar lyftur verða opnaðar á næstu dögum eftir því sem snjóalög leyfa.

Opnunin nú er að öllu leiti hinu öfluga snjóframleiðslukerfi að þakka. Snjóframleiðslukerfið er rekið með stuðningi Vina Hlíðarfjalls sem er hópur fyrirtækja, sem öll eru leiðandi í íslensku atvinnulífi og vilja með starfssamningnum renna styrkum stoðum undir rekstur skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli.

 

Um helgina og næstu daga verður hefðbundin opnunartími. Mikil opnun verður um jól og áramót, því gert er ráð fyrir góðu skíðatímabili yfir hátíðarnar.

 

Síðastliðin nótt hefur skilað allnokkrum púðursnjó og því er nú er orðið ágætis færi í eftirfarandi brekkum. Auði, Andrés og Strompi. Veðurspáin fyrir næstu daga er mjög hagstæð skíðaiðkendum, lítilsháttar frost og snjómugga annað kastið.

 

Opnunartímar næstu daga eru:

 

7/12: frá kl. 15 - 19

8/12 og 9/12: frá kl. 10 - 17

frá 10/12 er opið á virkum dögum kl. 16 - 19.