.jpg)
Saga
Capital hefur gengið til liðs við þau 12 íslensku
fyrirtæki sem áður höfðu gert samstarfssamning við Akureyrarbæ um uppbyggingu
og rekstur snjóframleiðslukerfis í Hlíðarfjalli.
„Við erum mjög ánægðir með þá uppbyggingu sem átt
hefur sér stað í Hlíðarfjalli og teljum Fjallið eina rétta staðinn fyrir Vetraríþróttamiðstöð
Íslands. Það gleður okkur því að geta komið að þessu málum með þessum hætti og
við hlökkum mikið til samstarfsins,“ segir Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson,
forstjóri Saga Capital, og bætir við að í tilefni af
þessum tímamótum ætli Saga Capital að bjóða gestum
Hlíðarfjalls upp á heitt kakó alla páskana.
Aðrir Vinir Hlíðarfjalls eru: Baugur Group, Hf. Eimskipafélag Íslands,
Flugfélag Íslands, Glitnir, Greifinn, Höldur ehf., Icelandair Group, ISS
Ísland, KEA, Landsbankinn, SBA-Norðurleið
og Sjóvá.