19. janúar 2007

Nýr snjótroðari afhentur í Hlíðarfjalli

 

Vetraríþróttamiðstöð Íslands hefur fest kaup á tveimur snjótroðurum, frá fyrirtækinu Kässbohrer AG, til notkunar á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli. Fyrri troðarinn, sem er af gerðinni PistenBully 300 Kandahar, var afhentur í dag en hinn, PistenBully 300 ParkBully, verður afhentur næsta haust.

 

Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður svæðisins, segir að með aukinni aðsókn sé þörf á að troða fleiri brekkur og oftar á sem skemmstum tíma og kalli það á aukinn tækjakost.

“Það má segja að troðarinn komi til með að leysa fjóra þætti hjá okkur; við getum troðið fleiri leiðir en áður, við getum troðið sama magn og áður á styttri tíma, við getum ýtt út þeim snjó sem við erum að framleiða á styttri tíma en áður og síðast en ekki síst mun hann nýtast vel í sambandi við göngubrautina. Þessi snjótroðari er með áföstum gönguspora og því verður vinnan við göngubrautina mun auðveldari en áður og á að taka skemmri tíma.”

 

“Maðurinn” á bak við tjöldin

Guðmundur segir að það megi segja að snjótroðari sé hinn raunverulegi “maður” á bak við tjöldin. “Fólk tekur ekki alltaf eftir þeirri miklu vinnu sem troðararnir eru notaðir í á svæðinu því sú vinna fer mikið til fram áður en það mætir á svæðið, það er á nóttunni og snemma á morgnanna,. Það tekur drjúgan tíma að troða einhvern ákveðinn flöt. Við getum sagt að meðal snjótroðari keyrir á um 6 til 10 km hraða á klukkustund þegar hann er að troða og fyrir hvern opnunardag vinnur troðari því í um 4 til 8 klukkustundir, það fer eftir snjóalögum.

“Veðrið undanfarið er í raun kennslubókardæmi um hvernig við viljum hafa það,” segir Guðmundur. “Í gær var til dæmis kalt og logn og mikil snjókoma og ef allt ætti að vera fullkomið þá hefði ekki átt að stytta upp fyrr en í hádeginu í dag, þá hefðum við haft passlegan tíma til að troða brekkurnar áður en fólkið kæmi á svæðið klukkan fjögur.”

 

Góð aðsókn í vetur

“Veturinn hefur gengið mjög vel þrátt fyrir sveiflukennt veður, þótt ekki sé meira sagt. Aðsókn hefur verið alveg gríðarlega góð, vetrarkortasalan verið mikil og ég veit að ferðaþjónustuaðilar á svæðinu eru ánægðir.” segir Guðmundur.

Hann segir að vert sé að hafa í huga að frá árinu 1980 og til dagsins í dag þá séu flestir skíðadagar í fjallinu eftir miðjan janúar og fram eftir vetri. “Við gátum opnað í nóvember og skíðafærið var mjög gott í nóvember og desember, allt þangað til hlákan kom um miðjan jólamánuðinn. Reynsla síðustu ára hefur samt verið sú að það hefur ekki komið neinn snjór að ráði fyrr en í lok janúar og byrjun febrúar svo við vorum langt á undan þeim áætlunum. Því er óhætt að segja að snjóframleiðslan hafi sannað sig enn og aftur, sérstaklega um og eftir þær miklu umhleypingar sem urðu rétt fyrir jól.” Hann segir einnig að snjógirðingar sem settar voru upp hjá göngubrautinni í sumar hafi líka reynst mjög vel og því má segja að þær framkvæmdir sem unnið var að síðastliðið sumar hafi nú þegar sannað sig.

 

Vinir Hlíðarfjalls

“Þáttur vina Hlíðarfjalls hefur skipt miklu máli og segja má að það hafi orðið mikil skil í rekstri svæðisins frá því sem áður var þegar snjóframleiðslukerfið var tekið í notkun,” segir Guðmundur, en Vinir Hlíðarfjalls gerðu í fyrra samstarfssamning við Akureyrarbæ um að leggja fram um 20 milljónir króna til sjóframleiðslunnar í Hlíðarfjalli á fimm ára tímabili. Með þessu vildu þau renna styrkum stoðum undir rekstur skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli og efla þar með ferða- og atvinnumál á Akureyri. Vinir Hlíðarfjalls eru: Baugur Group, Hf. Eimskipafélag Íslands, Flugfélag Íslands, Glitnir, Greifinn, Höldur ehf., Icelandair Group, ISS Ísland, KEA, Landsbankinn, SBA Norðurleið og Sjóvá

 

Myndirnar tók Hermann Sigtryggsson.

 

F.v. Þórarinn B. Jónsson, formaður stjórnar Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands, Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður Skíðastaða, Ívar Sigmundsson, umboðsmaður Kassbohrer AG, Ólafur Jónsson, formaður íþróttaráðs Akureyrar, og Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjarstjóri.

 

Það var 12 stiga frost þegar snjótroðarinn var afhentur og því var gott að fá kaffi, kakó og kleinur að afhendingu lokinni. 

 

 

 

Guðmundur Jónsson, Hermann Jón Tómasson, formaður bæjarráðs Akureyrar og Ólafur Jónsson.

 

Þórarinn afhendir lykla af troðaranum til bæjarstjóra Akureyrar, Sigrúnar Bjarkar Jakobsdóttur. Á milli þeirra stendur Ólafur Jónsson.

 

Þórarinn B. Jónsson, formaður stjórnar Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands. Í baksýn er snjótroðarinn,  PistenBully 300 Kandahar. 

Ívar Sigmundsson og Kristinn Svanbergsson, íþróttafulltrúi Akureyrar.