29. júní 2006:
Í gær brá Hermann Sigtryggsson sér í Hlíðarfjall þar sem verið er að vinna að ýmsum verkefnum af fullum krafti. Nýbygging við áhaldahúsið er í smíðum, búið er að leggja veg að gönguhúsinu og þar er komið allstórt bílastæði. Þá er byrjað þar sem frá var horfið sl. haust við gerð uppistöðulóns fyrir snjógerðina o. fl.
Hér fyrir neðan eru
nokkrar myndir sem Hermann tók í blíðunni í gær.
|
Búið er að endurbyggja veginn sem liggur frá Skíðahótelinu að gönguhúsinu. |
Vegurinn að gönguhúsinu er nú upphækkaður og malarborinn. |
Allstórt bílastæði hefur verið búið til austan við Gönguhúsið. |
|
|
|
|
|
Unnið að viðbyggingu við áhaldahúsið í Hlíðarfjalli. |
Vinna er hafin að nýju við uppistöðulónið sem er notað fyrir snjógerðina. |
Vestari bakkinn á uppistöðulóninu er orðinn allhár. |
|
|
|
|
|
Unnið við uppistöðulónið. Ef myndin er skýr má sjá hæl á henni miðri, en frá honum og niður á botn lónsins verða fimm metrar, svo mikil og erfið vinna er þarna eftir. |
Jarðvegur er mjög þéttur og harður og á 40 tonna grafan fullt í fangi með að vinna á honum. |
Þetta er bráðabyrgðatankurinn sem notaður var sl. vetur. Hann tekur um 10 þús. lítra af vatni og bjargaði því sem bjargað var í alpagreina-brekkunum, en veturinn var mjög snjóléttur. Þess má geta að nýja uppistöðulónið tekur 18.000 rúmmetra af vatni. |
|
|
|
|
|
Olía sett á 33 tonna ýtu, en ekkert minna verkfæri þarf til að vinna á jarðveginum í uppistöðulóninu. |
Unnið að lagfæringu á veginum upp í Strýtu. |
Jafnframt vegabótum í fjallinu er unnið að því að lagfæra brekkur og búa í haginn fyrir framtíðina, slétta yfirborð og koma burtu grjóti, sem stundum vill standa upp úr snjónum. |
|
|
|
|