Vetraríþróttamiðstöð
Íslands hefur fest kaup á tveimur snjótroðurum, frá fyrirtækinu Kässbohrer AG, til notkunar á
skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli. Fyrri troðarinn, sem er af gerðinni PistenBully 300 Kandahar, verður
afhentur í janúar nk. en hinn, PistenBully 300 ParkBully, verður afhentur haustið 2007.
Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður svæðisins,
segir að þegar troðararnir verða komnir í notkun þá verði hægt að troða meiri
snjó á styttri tíma og þar af leiðandi verða þeir fljótari að vinna brekkurnar.
“Troðarinn sem við fáum næsta haust er mjög góður í sambandi við pallagerð og
slíkt fyrir snjóbrettafólk. Þannig að við munum eiga auðveldara með að útbúa
skemmtilegar brautir og svæði fyrir þá sem eru á brettunum.”

PistenBully 300 Kandahar

PistenBully 300 Parkbully

PistenBully 300 ParkBully