11. apríl 2006:
Skautahöllin
Lazer-hallamál á hefilinn
Skautahöllin á Akureyri hefur fest kaup á Lazer-hallamáli á íshefilinn sem notaður er á svellinu. Lazer-sendir er á austurvegg hallarinnar en nemar og stjórntæki, sem eru á sjálfum heflinum, sjá svo um að stilla hnífinn á heflinum ávallt í rétta hæð og tryggja þannig jafnþykkan ís á öllu svellinu.

Þessi nýju búnaður auðveldar starfsmönnum til muna alla stjórnun á heflinum. Nú þarf einungis að styðja á takka en áður þurfti að snúa sérstakri stöng á heflinum sem á var snúningshjól, sem starfsmenn notuðu til þess að stilla þykkt íssins og oft var tilfinningin látin ráða.
Orkusparandi
Á myndinni má sjá nema og stjórntæki sem eru á sjálfum heflinum. Stjórnborðið sem kom í stað snúningshjólsins er staðsett við stýrið og neminn er efst á stönginni sem er á hliðinni á heflinum. Á innfelldu myndinni sést lazer-sendirinn sem er á austurvegg hallarinnar.