31. júlí 2006:

Myndir frá framkvæmdum í Hlíðarfjalli
Framkvæmdir í Hlíðarfjalli ganga vel. Nú er uppistöðulónið að taka á sig endanlega mynd og vinna við stækkun áhaldahússins er í fullum gangi. Í sumar hafa starfsmenn Skíðastaða unnið vélavinnu við að jafna og rétta af göngubrautir í Hlíðarfjalli, en síðan hafa sjálfboðaliðar frá Skíðafélagi Akureyrar unnið að því að hreinsa grjót úr brautunum fínjafna þær og síðan dreift í þær fræi og áburði. Með þessum aðgerðum verður mun auðveldara að halda við göngubrautum í fjallinu á veturna og minni snjó þarf til að gera þær nothæfar fyrir skíðafólkið.

 

Nýlega tók Hermann Sigtryggsson myndir, sem gefa góða hugmynd af stöðu mála við lagfæringu göngubrautar, gerð uppistöðulóns fyrir snjógerðarkerfi og stækkun vélageymslu. Myndirnar voru teknar 25. og 28 júlí sl.

 

 

Tvær öflugar gröfur eru að  ganga frá bökkum lónsins, en 7 metrar verða frá yfirborðinu niður á botn. Áætlað er að lónið taki 20 millj. lítra af vatni. Þegar farið verður að fylla lónið  verður tveim lækjum sunnan og norðan við lónið veitt inn í það.
Séð eftir lóninu til suðurs. Ef myndin kemur vel út má sjá tvo menn á botni lónsins, en það eru stjórnendur vélanna Haukur Pálmason og Jón Jóhannsson
Verktaki við þessar framkvæmdir er G. Hjálmarsson, Akureyri. Verkið hófst í fyrrahaust en mjög óhagstæð tíð kom í veg fyrir að það væri klárað þá, en aftur var hafist handa nú fyrir nokkrum vikum. Verkið hefur gengið mjög vel í sumar þó jökulleirinn væri nokkuð harður undir tönn. Næstu verkefni verða að grafa fyrir pípulögn úr lóninu í dælustöðina, breyta farvegum lækjanna sem nota á, setja yfirfall ofl. Allt verður þetta á áætlun svo hægt verður að nota vatnið til snjógerðar í byrjun vetrar.

 

Afstaða lónsins til Fjarkans og Skíðahótelsins.
Vinnusvæðið við Fjarkann og uppistöðulónið.
Fyrirtækið Völvusteinn á Akureyri annast viðbygginguna við áhaldahúsið. Á myndinni eru: Í miðið Jón Hjörleifsson og sitt hvoru megin við hann tveir pólverjar þeir Palli og Valdi en þýðingin á nöfnum þeirra kom best út þannig.

 

Jóhannes og Lára.
Kristinn, Jóhannes og Ingvar að eiga við einn Fullsterkan.
F.v. Kristinn, Jóhannes, Andri, Ingvar, Helgi og Lára.
Afstaða göngubrautar til Skíðahótelsins á kafla vestur af gönguhúsi.

 

F.v. Helgi, Lára, Jakob, Jóhannes, Andri og Ingvar með sáningarföturnar.
F.v. Lára, Andri og Jakob að dreifa áburði og grasfræi
F.v. Jóhannes, Kristinn og Ingvar við sáningu.