2. desember 2005

Snjóframleiðslan gengur vel

Kjöraðstæður í fjallinu

 

Þrjár snjóbyssur voru í gangi í Hlíðarfjalli í dag þegar tíðindamann heimasíðunnar bar að garði fyrr í dag. Tvær þeirra voru búnar að vera í gangi frá því kl. 18 í gær og var stærðarinnar snjóskafl fyrir fram þær.

Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður VMÍ og Hlíðarfjalls, segir að snjóframleiðslan gangi vel. “Núna eru við að keyra þessar þrjár á 30% afköstum. Í dag er 7 stiga frost, en kjöraðstæður er 14 stiga frost. Þá getum við stillt þær á fulla framleiðslu.”

 

Það þarf að fara langt til að finna svona góðar skíðaaðstæður eins og nú er í Hlíðarfjalli svo það er bara um að gera og skella sér á skíði.

 

Myndirnar hér fyrir neðan segja allt sem segja þarf. (Smellið á myndirnar til að sjá þær í stærri útgáfu.)