16. mars 2006
Vinir Hlíðarfjalls
Fulltrúar
nokkurra fyrirtækja, sem kalla sig Vini Hlíðarfjalls, undirrituðu í gær
samstarfssamning við Akureyrarbæ um að leggja fram um 20 milljónir króna til
sjóframleiðslunnar í Hlíðarfjalli á næstu fimm árum. Þessi fyrirtæki, sem öll
eru leiðandi í íslensku atvinnulífi, tóku höndum saman í kjölfar umræðna um
snjóframleiðslu og möguleika á því sviði.
Þau vilja með samstarfssamningnum renna styrkum stoðum
undir rekstur skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli og efla þar með ferða- og
atvinnumál á Akureyri. Samhliða gefst fyrirtækjunum kostur á að nýta sér
sóknarfæri gagnvart aukinni ferðaþjónustu sem á eftir að dafna í kjölfarið. Sem
dæmi má nefna að með snjóframleiðslunni er kominn grunnur að því að skíðasvæðið
geti verið opið um jól og áramót, sem eru nýir og góðir ferðamannamöguleikar.
Snjóframleiðslan skiptir miklu máli
Skíðasvæðið
í Hlíðarfjalli er búið að vera opið í 45 daga í vetur og um 12.000 gestir hafa
mætt á svæðið. Þetta er mjög gott, sérstaklega í ljósi þess að mánuðirnir
janúar og febrúar voru þeir hlýjustu og vætusömustu í manna minnum. Staðreyndin
er sú að ef snjóframleiðslukerfið væri ekki til staðar þá væri skíðasvæðið búið
að vera lokað síðan um jól. Með framleiðslu á snjó er einnig búið að tryggja að
Andrésar Andarleikarnir verða haldnir sumardaginn fyrsta um ókomna tíð.
Meðal hitastig við snjóframleiðslu hefur verið -5,8 gráður
og rakastigið hefur verið 75,5%. Nú er búið að framleiða snjó í rúmlega 380
klukkustundir og er afraksturinn um 30.000 rúmmetrar af snjó.
Vinir Hlíðarfjalls eru:
·
Avion
Group
·
Baugur
Group
·
Flugfélag
Íslands
·
Glitnir
·
Greifinn
·
Höldur
– Bílaleiga Akureyrar
·
Icelandair
Group
·
ISS
Ísland
·
KEA
·
Landsbankinn
·
SBA
Norðurleið
·
Sjóvá