17. nóvember 2005

Snjóframleiðsla í sól í Hlíðarfjalli

 

Í gær, miðvikudaginn 16. nóvember, hófst snjóframleiðsla í Hlíðarfjalli, er fyrsta snjóbyssan var sett í gang og prufukeyrð. Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður VMÍ og Hlíðarfjalls, segir að allt hafi gengið samkvæmt áætlun og að allar sjö byssurnar verði komnar í gagnið strax í næstu viku.

 

 

Á myndinni hér til hliðar er snjóbyssan í óða önn að framleiða snjó á meðan sólin skín skært á Skíðahótelið.

 

Hér fyrir neðan eru fleiri myndir sem teknar voru af snjóbyssunni, þar sem hún var í óða önn að framleiða snjó. (Smellið á myndirnar til að sjá þær í stærri útgáfu.)