Fréttir:
Námskeið í Curling
![]()
14. desember 2001:
Undanfarna viku hafa dvalið á Akureyri kanadísk hjón í þeim
tilgangi að halda námskeið í curling á vegum Skautafélags Akureyrar.
Nokkur hópur fólks á Akureyri stundar þessa skemmtilegu íþrótt að
staðaldri en hún nýtur mikilla vinsæla víða erlendis......
Kennararnir á námskeiðinu, Delores Cordner og Ian Cordner, standa bæði
framarlega greininni og hafa m.a. orðið bandarískir meistarar. Þau eru
búsett í Bandaríkjunum en eru frá Kanada og Delores er reyndar á
vestur-íslenskum ættum. Námskeiðið tókst afar vel í alla staði og mun væntanlega leiða til þess að iðkendahópurinn
á Akureyri fer stækkandi.
Í curling er 20 kílóa sérslípuðum granítsteinum rennt eftir svellinu sem fengið hefur sérstaka meðhöndlun áður. Steinunum er rennt í svokallaða heimahöfn og gengur keppnin út á að láta þá stöðvast sem næst miðju. Fjórir eru í hverju liði og fær aðeins annað liðið stig í hverri umferð, þ.e. það lið sem á steininn næst miðju. Þess má geta að curlingfólk á Akureyri er að vinna í að koma upp heimasíðu sem verður hægt að nálgast af heimasíðu Skautafélags Akureyrar. Meðfylgjandi myndir voru teknar á námskeiðinu.
Smellið á myndirnar til að sjá þær stærri.
![]()