7. nóvember 2005
Fínt færi í Fjallinu á fyrsta degi
Síðastliðinn laugardag opnaði skíðasvæði Akureyringa í Hlíðarfjalli. Færið var gott og veðrið frábært til skíða- og brettaiðkunar. Fjölmargir skelltu sér á skíði, bæði á laugardeginum og einnig á sunnudeginum.
Fjallið mun næst verða opið nk. laugardag, 12. nóvember. Göngubrautin er troðin daglega. Vetrarkortin frá því í fyrra gilda fyrst um
sinn.