Elstu menn muna ekki eftir öðru eins
Eins og áður hefur komið fram hér á síðunni gengur
uppsetning snjóframleiðslukerfis í Hlíðarfjalli ágætlega miðað við aðstæður.
vera. Þetta
mun samt sem áður ekki aftra okkur frá því að taka kerfið í notkun um miðjan nóvember
og opna fjallið í byrjun desember eins og áætlanir gerðu ráð fyrir. Við erum búnir
að koma öllu í jörð sem þurfti að leggja og við reiknum með að hægt verði að
setja vélbúnað í dælustöðina um miðjan október.” segir Guðmundur.
Septembermánuður var kaldur um allt land. Á Akureyri var
meðalhitinn 4,7 stig, sem er 1,6 stigum undir meðallagi, og hefur ekki verið
svo kalt í september síðan 1982. Þá mældist meðalhiti á Akureyri 4,6 stig. Samkvæmt
fréttum frá Veðurstofunni er afar óvenjulegt að snjó festi á Akureyri í
september, en það gerðist einmitt nú. Aðeins hefur snjó fest fimm sinnum áður í
september á síðustu fjörutíu árum. Úrkoman á Akureyri mældist 92 mm og er það meira en tvöföld meðalúrkoma. Sólskinsstundir
voru 79, en eru 85 í meðalári.