Framkvæmdir við uppsetningu snjóframleiðslukerfis ganga vel í Hlíðarfjalli
Þann 11. ágúst sl. var fyrsta skóflustungan að fyrsta snjóframleiðslukerfi á Íslandi tekin í Hlíðarfjalli. Í framhaldinu var hafist handa við lagningu veitukerfis um skíðasvæðið sem verður um 2.600 metrar að lengd en um kerfið verður hægt að dæla 80 sekúndulítrum af vatni sem fást úr 18.500 m3 tjörn sem grafin verður nokkru sunnan við skíðasvæðið. Vatnsúrtök í kerfinu verða 33 en notaðar verða sjö snjóbyssur til þess að framleiða snjó.
Framkvæmdir á áætlun
Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður Vetraríþróttamiðstöðvarinnar,
segir að framkvæmdunum miði vel, “nú þegar
er búið að leggja um 1.100 metra af
lögnum og er verkið á áætlun.”
Samkvæmt áætlun á framkvæmdunum að ljúka um miðjan október og hefst þá snjóframleiðsla um leið og aðstæður leyfa. Til að búa til snjóinn þarf að vera í það minnsta tveggja gráðu frost en því meiri sem kuldinn er því meiri verður framleiðslugetan. Stefnt er að því að opna skíðasvæðið eigi síðar en 3. desember nk.
Á myndinni hér til hliðar sést hvar byrjað er að leggja rör í vatnsveituskurðinn. Myndina tók Hermann Sigtryggsson. (Smellið á myndina til að sjá hana í stærri útgáfu.)