1. september 2006:
Undanfarið hefur Hermann Sigtryggsson tekið margar myndir af framkvæmdum í
Hlíðarfjalli og nokkrar þeirra eru komnar hér á heimasíðuna. Lokið er jarðvinnu
vegna snjógerðarkerfisins svo að hægt verður að nota það með fullum afköstum í
vetur. Myndirnar eru teknir á tímabilinu 18. til 29. ágúst sl.
|
Myndir teknar 18. og 19. ágúst sl. |
||
|
Hér er verið að grafa
frárennslisskurð úr væntanlegu uppistöðulóni í Hlíðarfjalli. Undirverktaki
frá Sauðárkróki, Vinnuvélar Símonar Skarphéðinssonar annast það verk ásamt
fleiru sem það fyrirtæki vinnur á vegum G.Hjálmarssonar á Akureyri.
|
Unnið við frárennslislögn
úr lóninu.
|
Símon Skarphéðinsson
eigandi Vinnuvéla frá Sauðárkróki í einni af vinnuvélum sínum.
|
|
Séð úr
frárennslisskurðinum inn í lónið.
|
Unnið við frárennslislögnina
að dæluhúsinu.
|
Starfsmenn frá
Sauðárkróki. Fv. Símon Skarphéðinsson, Sigurjón Leifsson, Fjólmundur
Fjólmundsson og Ægir Örn Ægisson.
|
|
Vatn í lónið verður
aðallega tekið úr tveimur lækjum. Hér er Guðmundur Guðmundsson, verkstjóri í
Hlíðarfjalli að vinna við tvær stórar fyrirstöðublokkir sem settar verða í
lækina og vatnið síðan leitt frá þeim í lónið.
|
Á föstudögum gera
starfsmenn Hlíðarfjalls sér gjarnan dagamun og grilla þá í hádeginu. Fv.
Guðmundur Guðmundsson verkstjóri, Örn Þorsteinsson rafvirki og Brynjólfur
Magnússon gröfumaður.
|
Viðbótarbygging við
áhaldageymslu í Hlíðarfjalli gengur vel.
|
|
Hér er efni sem notað verður í
snjógirðingar sem settar verða upp í haust. Skíðagöngumenn hafa aðstoðað starfsmenn
Hlíðarfjalls við uppsetningu þeirra.
|
|
|
|
|
|
|
|
Myndir teknar 23. ágúst sl. |
||
|
Gröfustjórinn, Sigurður
Freyr Emilsson, kominn með tæki sitt efst í Strompbrekkuna.
|
Byrjað að grafa fyrir
vatnslögninni efst í Strompbrekkunni. Haldið af stað niður í mesta brattann.Hér er verið að grafa
frárennslisskurð úr væntanlegu uppistöðulóni í Hlíðarfjalli. Undirverktaki
frá Sauðárkróki, Vinnuvélar Símonar Skarphéðinssonar, annast það verk ásamt
fleiru sem það fyrirtæki vinnur á vegum G.Hjálmarssonar á Akureyri.
|
Strompbrekkan er mjög
brött og eins gott að kunnáttumenn séu á þeim stóru tækjum sem notuð eru við
verkið.
|
|
Vinnuvélin að nálgast
mesta brattann í Strompbrekkunni.
|
Útsýni úr efri hluta
Strompbrekkunnar.
|
Grafan fikrar sig niður
eftir Strompbrekkunni.
|
|
Unnið að röralagningu.
|
Unnið að röralagningu.
|
Símon Skarphéðinsson í
miðri Strompbrekkunni að leggja vatnsrörin.
|
|
Byrjað var aftur þar sem
frá var horfið í fyrrahaust. Skurðir fyrir vatnsleiðslur grafnir upp
Strompbrekkuna þar sem settir verða vatnsstútar fyrir snjógerðarvélarnar.
|
|
|
|
|
|
|
|
Myndir teknar þann 25. ágúst sl. |
||
|
Starfsmenn G.
Hjálmarssonar h.f. eru hér að klára frágang við veg upp að uppistöðulóninu. Einnig
var borið malarlag á veg umhverfis uppistöðulónið. Ýtustjóri er Jón
Jóhannsson.
|
Jón á ýtunni og Teitur
Viðarsson stjórnar bílnum.
|
Þórður Hjörleifsson
bílstjóri hjá G. Hjálmarssyni.
|
|
Haukur Pálmason brá sér á
valtarann.
|
Malarnáma sunnan
forstöðvar Hjallalyftu. Í baksýn er brekkan norðan stólalyftunnar en þar
hefur verið sáð grasfræi og áburður borinn á og eru brekkurnar nú grænt yfir
að líta.
|
|
|
|
|
|
|
Myndir teknar 28. og 29 ágúst sl. |
||
|
Hér er verið að leggja síðustu leiðslurnar og moka yfir
skurðina í Strompbrekkunni.
|
Símon við einn
úttaksbrunninn sem verið er að setja niður í skurðinn.
|
Skurðurinn er vel nýttur,
því auk vatnslagna er lagður rafmagnskapall fyrir ljósin á þessu svæði og
ljósleiðari vegna tímatöku á skíðamótum.
|
|
Ekki má tæpara standa með
þetta verk vegna veðurs, því rignt hafði í fjallinu og þegar þessi mynd var
tekin var kominn allmikill éljagangur og fjallatopparnir farnir að hvítna.
Starfsmenn Vinnuvéla frá Sauðárkróki sögðust ljúka þessu verki um kvöldið.
|
Starfsmenn Hlíðarfjalls
hafa í mörgu að snúast þessa dagana og eru að undirbúa veturinn af kappi. Hér
eru Guðmundur Guðmundsson verkstjóri og Valdimar Ólafsson verstæðisformaður.
|
|