Fréttir:
Hátíðarstemmning í Hlíðarfjalli
![]()
24. janúar 2002:
Í gær var nýja stólalyftan
í Hlíðarfjalli opinn fyrir almenning í fyrsta sinn. Um 300 manns mættu í
fjallið í hátíðarskapi og fögnuðu þessum merka áfanga. Stöðugt hefur
bætt á snjóinn undanfarna daga og útlit fyrir að hægt verði að opna
allar lyftur um helgina.
Meðfylgjandi myndir voru teknar í gær.