4. október 2005

Búið að opna göngubrautina í Hlíðarfjalli

 

Þann 29. september sl. var göngubrautin í Hlíðarfjalli opnuð. Töluvert hefur snjóað í fjallinu að undanförnu og hefur göngubrautin sjaldan eða aldrei verið opnuð jafn snemma og nú.

Fólk er eindregið hvatt til að nýta sér þessar fínu aðstæður sem nú eru í fjallinu, taka fram gönguskíðin og ganga einn hring, eða fleiri, í göngubrautinni. Kveikt verður á ljósunum í brautinni og því verður hægt að ganga til kl. 22:00 á kvöldin á meðan.

 

Myndin var nú reyndar ekki tekin í morgun, en það er um að gera að nýta sér snjóinn sem nú er kominn í fjallið. Það er aldrei að vita hve lengi hann verður til staðar. Smellið á myndina til að sjá hana í stærri útgáfu.)