Fréttir:
Heimsþekktur skíðakennari heldur námskeið á Akureyri
![]()
8. apríl 2002:
|
Einn þekktasti skíðakennari heims, Jeannie Thoren, kemur til Akureyrar seinna í mánuðinum, nánar tiltekið dagana 19.-21. apríl, og heldur námskeið í Hlíðarfjalli. Hún hefur undanfarna áratugi aflað sér mikillar virðingar í skíðaheiminum fyrir rannsóknir sínar á líkamsbeitingu kvenna í skíðabrekkunum og hvernig konur geta tekið stórstígum framförum með einföldum og ódýrum breytingum á skíðabúnaði sínum. Tímaritið Skiing hefur m.a. útnefnt hana sem einn af 25 áhrifamestu einstaklingum skíðaíþróttarinnar á síðustu 50 árum, sem segir meira en mörg orð. Með komu Jeannie Thoren til Íslands skapast þannig einstakt tækifæri fyrir konur á öllum aldri til að auka þekkingu sína og færni á skíðum.
Búnaðurinn
veiki hlekkurinn
Jeannie Thoren hefur sýnt fram á að veiki hlekkurinn í því að konur nái árangri á skíðum er oftar en ekki skíðabúnaðurinn. Hann þarf að laga að líkamsbyggingu kvenna, sem er öðruvísi en karla. T.d. liggur þyngdarpunktur kvenna lægra og aftar en hjá körlum, auk þess sem breiðari mjaðmagrind og minni styrkur í hnjám og ökklum, leiða til þess að staða skíðanna er ekki eins góð og hún getur verið. Thoren segir m.a. að mjög algengt vandamál hjá konum sé t.d. að þeim hætti til að falla aftur fyrir sig eða á mjöðmina, framendi skíðanna leitist við að fara í kross en að aftan leiti skíðin út á við án þess að við neitt verði ráðið. Fyrir þessu séu fullkomlega eðlilegar skýringar en úrbætur séu einfaldar, m.a. tilfærsla á bindingum og sérstök innlegg í skíðaklossana og hækkun undir hælinn sem Jeannie Thoren lætur framleiða. Pláss
fyrir 20 konur Rétt er að benda á að fjöldi þátttakenda á námskeiðið er takmarkaður við 20 og áhugasömum konum er því bent á að hafa samband fyrr en seinna. Skráning á námskeiðið er í síma 462 2280.
|
||||||||
![]()