Fréttir:
Troðnar skíðagöngubrautir ú Kjarnaskógi
![]()
28.
nóvember 2001:
| Skíðagöngubrautir í Kjarnaskógi
hafa verið troðnar, en á mánudag var þar kominn nægur snjór til þess
að fara á skíði. Í tilkynningu frá Skógræktarfélagi Eyfirðinga,
sem sér um að troða skíðagöngubrautirnar, segir að eftir snjókomuna
í gær hafi aðstæður enn batnað í Kjarnaskógi. Spáð er köldu
veðri áfram og því ætti skíðafærið að haldast.
Í Hlíðarfjalli er hins vegar ekki kominn nægur snjór til þess að opna göngusvæðið þó ekki vanti mikið upp á að það verði mögulegt. Um miðjan desember, dagana 15. og 16. desember, er áætlað fyrsta bikarmót Skíðasambandsins í skíðagöngu í Hlíðarfjalli og þá binda menn vonir við að verði kominn nægur snjór í fjallið.
|
![]()