Fréttir: Nýja stólalyftan afhent
line_horz.gif (727 bytes)
21. desemberber 2001:
Í gær fékk Akureyrarbær afhenta nýju stólalyftuna í Hlíðarfjalli frá lyftuframleiðandanum, Doppelmayr í Austurríki. Framkvæmdir við lyftuna hafa gengið með eindæmum vel og þær áætlanir sem lagt var af stað með þegar framkvæmdir hófust síðla sumars fyllilega gengið eftir. Margir gera sér e.t.v. ekki fulla grein fyrir af hvaða stærðargráðu verkið er en það ættu þó öllum að vera ljóst sem koma upp í Hlíðarfjall og líta þetta mikla mannvirki augum. Það var eins og við manninn mælt, um leið og framkvæmdum var lokið fór að snjóa og gekk á með dimmum éljum í Hlíðarfjalli á meðan afhendingarathöfnin stóð yfir. Formleg vígsla lyftunar verður í janúar og þá verður vonanadi kominn nægur snjór í Hlíðarfjall.

Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar lyftan var afhent. Smellið á myndirnar til að sjá þær stærri.

afhend1.jpg (44598 bytes)
Færibandið skoðað. Ásgeir Magnússon, bæjarfulltrúi og formaður, framkvæmdaráðs Akureyrarbæjar, Guðmundur Karl Jónsson, framkvæmdastjóri VMÍ og forstöðumaður Skíðastaða og Jóhann G. Sigurðsson, formaður stjórnar VMÍ.
afhend2.jpg (43881 bytes)
Hér má sjá hvar skíðamenn stíga inn á færibandið sem flytur þá að lyftunni. Sem sjá má af myndunum snjóaði drjúgt í Hlíðarfjalli síðdegis í gær.
afhend3.jpg (43679 bytes)
Í stjórnherberginu. Þórarinn B. Jónsson, bæjarfulltrúi og formaður ÍTA, Ármann Jóhannesson, sviðsstjóri tækni- og umhverfissviðs Akureyrarbæjar, Ásgeir Magnússon, bæjarfulltrúi og formaður, framkvæmdaráðs Akureyrarbæjar, Guðmundur Karl Jónsson, framkvæmdastjóri VMÍ og forstöðumaður Skíðastaða og Jóhann G. Sigurðsson, formaður stjórnar VMÍ.
nylyfta2.jpg (97615 bytes)
Það var Ralph Nach Bauer frá lyftuframleiðandanum Doppelmayr (tv.) sem afhenti Ásgeiri Magnússyni lyftuna.
afhend4.jpg (61095 bytes)
Merkum áfanga náð og lyftan formlega komin í hendur Akureyrarbæjar. Talið frá vinstri: Ásgeir Magnússon, Þórarinn B. Jónsson, Jóhann G. Sigurðsson, Ármann Jóhannesson, Guðmundur Karl Jónsson, Kurt Vogelmayr, frá Doppelmayr, Ívar Sigmundsson, fyrrum forstöðumaður Skíðastaða, Ralph Nach Bauer frá Doppelmayr og Eiríkur Bj. Björgvinsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi Akureyrarbæjar.

[ Til baka ]
line_horz.gif (727 bytes)