6. október 2006:
Gerð uppistöðulóns fyrir snjóframleiðslukerfið í Hlíðarfjalli er nú lokið, lónið er tilbúið og fullt af vatni. Í botn uppistöðulónsins var sett götuð plastleiðsla. Í hana er hleypt lofti við ákveðin veðurskilyrði til að halda lóninu íslausu. Byrjað var að hleypa vatni í uppistöðulónið þann 15. september sl. og er nú vatnsborðið komið í þá hæð sem það á að vera í fyrst um sinn. Það er um 15.000 rúmmetrar, en mögulegt er að auka vatnsmagnið upp í 18.000 - 20.000 rúmmetra.
|
Hér er verið að steypa niður botnlagnir og vatnsúrtak úr lóninu.
|
Starfsmenn Hlíðarfjalls, þeir Guðmundur Guðmundsson og Valdemar Ólafsson, að
ganga frá úrtaksrörum.
|
Úrtaksrör og rist tilbúin
|
|
Hér er verið að koma fyrir stíflu í einn af
lækjunum sem vatnið í uppistöðulónið er tekið úr.
|
Stíflan komin á sinn stað og unnið að fyllingu að
henni.
|
Valdimar og Guðmundir að vinna við frágang á stíflunni.
|
|
Þannig stíflur voru settar í tvo læki, en einnig voru lækir sameinaðir ofan
við stíflurnar. Á myndinni sést útaksopið,
botnlokan og yfirfallsrásin á stíflunni.
|
Vatnsrörin tengd við stífluna.
|
Guðmundur og Haukur Pálsson, vélamaður hjá G.
Hjálmarsson, að koma vatnsrörunum fyrir.
|
|
Valdimar, Guðmundur og Haukur við vatnslögnina
|
Starfsmenn Hlíðarfjalls og G. Hjálmarssonar. FV. Valdemar Ólafsson, Guðmundur
Hjálmarsson, Guðmundur Guðmundsson og Haukur Pálsson.
|
Hér er verið að leggja síðustu metrana af
vatnslögninni.
|
|
Í botn uppistöðulónsins var sett götuð plastleiðsla
en í hana verður hleypt lofti við ákveðin veðurskilyrði sem heldur
lóninu íslausu.
|
Þann 15. september sl. var byrjað að hleypa vatni í
uppistöðulónið.
|
|
|
|
Vatn byrjað að koma í lónið. Loftleiðslunni lyft
aðeins frá botninum.
|
Vatnsborðið komið í þá hæð sem það á að vera í fyrist
um sinn og er vatnsmagnið c.a. 15000 rúmmetrar. Hægt verður að
auka vatnið upp í 18 - 20000 rúmmetra.
|
|
Séð yfir lónið og stíflu í einum læknum, Fjarkann,
Skíðahótelið og til Akureyrar.
|
Yfirfallsrás úr lóninu.
|
Nýr spennir fyrir rafkerfi lyftnanna og dælustöðina
settur upp. Hér eru Björgvin Björgvinsson og Óskar Bragason að verki.
|
|
Hilmar Brynjarsson, vélamaður í Hlíðarfjalli,
að fara í jarðvegsfrágang við forstöð Fjarkans.
|
|
|