Fréttir: Vetrarlegt í Hlíðarfjalli
line_horz.gif (727 bytes)
5. nóvember 2001:

Nú er að verða vetrarlegt í Hlíðarfjalli en snjórinn tefur þó í engu framkvæmdir við nýju stólalyftuna. Ef áfram bætir á snjóinn gæti hins vegar farið að styttast í upphaf skíðavertíðar.
      Öll möstrin fyrir nýju stólalyftuna eru nú risin, steypuvinnu er lokið og verið er að vinna við endastöðvar. Í vikunni er von á síðustu sendingunni frá framleiðanda stólalyftunnar og vegur hún samtals 75 tonn. Ráðgert er að uppsetningu verði lokið 15. desember nk.  Meðfylgjandi myndir voru teknar í blíðvirðinu í síðustu viku og tala sínu máli.

Smellið á myndirnar til að sjá þær stærri.


Við efri endastöð.

Möstrin eru mikil mannvirki.

Neðri endi lyftunnar er á svipuðum stað og gamla lyftan var. Í baksýn sést í Skíðastaði.

Hér sést upp með lyftunni.

[ Til baka ]

line_horz.gif (727 bytes)