Fréttir: Glæsilegt mannvirki að rísa
line_horz.gif (727 bytes)
30. nóvemberber 2001:
Þrátt fyrir að "Vetur konungur" hafi heldur hert tök sín að undanförnu halda framkvæmdir við nýju stólalyftuna í Hlíðarfjalli áfram eins og ekkert hafi í skorist. Eftir því sem dagarnir líða tekur þetta mikla mannvirki á sig endanlegri mynd og meðfylgjandi fjórar myndir voru teknar af drifstöðinni við neðri enda lyftunnar. Sem sjá má verður það nýtískulegt og glæsilegt mannvirki sem mætir fólki er það kemur upp í Hlíðarfjall á skíði. Með nýju stólalyftunni er tekið risaskref inn í framtíðina frá þeirri 35 ára gömlu stólayftu sem var í Hlíðarfjalli.

Smellið á myndirnar til að sjá þær stærri.

girkassi.jpg (81310 bytes)
Gírkassanum komið fyrir.
Þak_ur_fjarska.jpg (84398 bytes)
Skammdegisstemmning í Hlíðarfjalli. Drifstöðin séð úr fjarska.
Kurt_ og_þak.jpg (72383 bytes)
Drifstöðin að taka á sig endanlega mynd en hið bogadregna þak mun setja mikinn svip á staðinn.
MaggiGisla.jpg (77035 bytes)
Magnús Gíslason, múrarameistari, að störfum.

[ Til baka ]
line_horz.gif (727 bytes)