Fréttir: Allir stólar komnir á sinn stað
line_horz.gif (727 bytes)
17. desemberber 2001:
Nýja stólalyftan í Hlíðarfjalli er nú nánast tilbúin. Fyrir helgina var lokið við að koma stólunum fyrir á vírnum og því má segja að aðeins séu stillingaratriði eftir. Verkið hefur gengið að óskum og eru fulltrúar Doppelmayr, framleiðanda lyftunnar, yfir sig hrifnir af vinnubrögðum íslensku starfsmannanna. Síðar í vikunni mun lyftan verða afhent formlega en eiginleg vígsla hennar bíður hentugra tækifæris og ræðst m.a. af snjólalögum.

Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar verið var að koma stólunum fyrir. Smellið á myndirnar til að sjá þær stærri.

komidmedstola.jpg (76134 bytes)
Komið með stólana.
stoll1.jpg (82674 bytes)
Stóll nr. 1.
faeriband.JPG (73676 bytes)
Hér má sjá aðkomuna að lyftunni. Til að þægilegra sé að fara í lyftuna, stíga skíðamenn fyrst á eins konar færiband sem flytur þá á réttan stað áður en stóllinn kemur.
stollfari2.JPG (74583 bytes)
Hér sést upphafsstöðin og færibandið frá öðru sjónarhorni.
Stola 2.JPG (74581 bytes)
Stólarnir skrúfaðir á sinn stað.
stolar3.jpg (76197 bytes)
Upphafsstöðin séð ofan úr brekkunni.
smariskru.jpg (75653 bytes)
Smári Einarsson að koma stól fyrir á vírnum.
stoll_og fariband.JPG (76168 bytes)
Hér má enn sjá færibandið sem skíðafólk stígur á áður en það sest í stólinn.
skalað.jpg (80504 bytes)
Skálað fyrir vel heppnuðu verki.
fimm_saman.jpg (74950 bytes)
Þessir fimm eiga hver á sinn hátt verulegan þátt í að draumurinn um nýja stólalyftu í Hlíðarfajalli er að rætast. Talið frá vinstri: Óðinn Árnason, driffjöður í skíðamálum á Akureyri í áratugi; Ívar Sigmundsson, fyrrum forstöðumaður Skíðastaða og umboðsmaður Doppelmayr; Smári Einarsson, verkstæðisformaður Skíðastaða; Kurt Vogelmayr, fulltrúi Doppelmayr og Hermann Sigtryggsson, fyrsti framkvæmdastjóri VMÍ og fyrrum íþrótta- og tómstundafulltrúi á Akureyri.

[ Til baka ]
line_horz.gif (727 bytes)