6. mars 2006

Myndir frá námskeiði í vetraríþróttum fatlaðra

 

Í gær sunnudag  lauk námskeiði í vetraríþróttum fatlaðra, sem staðið hefur yfir á Akureyri undanfarna daga. Haldnir voru fyrirlestrar, þar sem m.a. kynnt var fjölbreytt starfsemi "Challenge Aspen", sem er nafn á hópi í Bandaríkjunum sem vinnur að íþróttum fyrir fatlaða, og verkleg kynning fór fram í Hlíðarfjalli. Að þessu námskeiði stóðu Vetraríþróttamiðstöðin á Akureyri og Íþróttasamband fatlaðra.

Hér fyrir neðan eru nokkrar svipmyndir frá námskeiðinu í Hlíðarfjalli sem teknar voru sl. föstudag. Myndirnar tók Hermann Sigtryggsson.