Fréttir:
Fullkomnasta Stólalyfta landsins í Hlíðarfjall
![]()
Bæjarráð Akureyrar hefur heimilað að gengið verði til viðræðna við fyrirtækið Doppelmayr um kaup á nýrri stólalyftu í Hlíðarfjall. Vinna við undirstöður er að hefjast og er áætlað að taka lyftuna í notkun um miðjan desember.
![]() |
| Hér má sjá lyftu sambærilega þeirri sem kemur í Hlíðarfjall. |
Þetta verður langfullkomnasta og um leið afkastamesta lyfta hér á landi. Hver stóll er með fjórum sætum og getur lyftan flutt um 2.000 manns á klukkustund. Til samanburðar flytur gamla stólalyftan í Hlíðarfjalli um 450 manns á klukkustund. Sú er orðin 35 ára gömul og fyrir lá að ráðast í kostnaðarsamt viðhald ef nota ætti hana áfram. Því var talið hagkvæmara að setja upp nýja lyftu, fá þannig stórlega aukin afköst og stíga skref til framtíðar. Nýja lyftan kemur á sama stað og gamla lyftan, sem tekin verður niður.
Áætlaður kostnaður er um 160 milljónir króna. Vetraríþróttamiðstöð Íslands, sem ríkið og Akureyrarbær standa að, greiðir 55 milljónir króna og bæjarsjóður Akureyrar það sem upp á vantar.
Alger bylting
„Að mínu mati er tilkoma nýrrar lyftu í Hlíðarfjall ámóta bylting og þegar núverandi stólalyfta kom í fjallið árið 1967. Lyftan mun hafa gríðarlega mikið að segja þegar til framtíðar er litið og hjálpa til við að tryggja Hlíðarfjalli forystuhlutverk meðal skíðasvæða hérlendis. Þessi framkvæmd styrkir Akureyri sem ferðamannastað yfir vetrartímann og eykur aðsókn í fjallið,“ segir Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður Skíðastaða og framkvæmdastjóri VMÍ.