13. október 2005

Skíðasvæðið verður opnað með allra fyrsta móti

 

Vetur konungur heilsar fyrr upp á landsmenn nú en nokkur síðustu ár. Um það ber snjóamagn víða um land merki og því var Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður VMÍ og Hlíðarfjalls, inntur hann eftir stöðu mála við uppsetningu snjóframleiðslukerfisins. “Hér snjóar og snjóar,” sagði Guðmundur. “Ef veðrið heldur svona áfram þá gætum við opnað skíðasvæðið mun fyrr en reiknað hefur verið með, en áætlanir okkar gera ráð fyrir að opnað yrði í byrjun desember. Nú göngubrautin var troðin og opnuð 29. september síðastliðinn og hefur hún aldrei áður verið opnuð jafn snemma. En um helgina er spáð 11 stiga hita og við verðum bara að bíða og sjá hvert framhaldið verður,” sagði Guðmundur Karl.

“Eins og staðan er á framkvæmdunum í dag þá erum við að fara að setja inn dælubúnað í dæluhúsið næstu daganna og því verki á að vera lokið 7. nóvember,” sagði hann og bætti við að 90% af þeim lögnum sem ætlunin var að leggja í vetur séu komnar í jörðu ásamt rafmagnsbúnaði í brekkum. "Við erum svo bara að bíða færis á að gera vatnslónið nægilega stórt til þess að það verði nothæft, en við reiknum með að allt þetta verði klárt í kringum 15. nóvember og þá getum við farið að búa til snjó,” sagði Guðmundur.

 

Metið varla í hættu

 

“Metið sem sett var árið 1981 er nú varla í hættu, en þá var opnað 17. október. Í fyrra var skíðasvæðið opnað 27. desember, árið 2004 var opnað 28. desember og árið þar áður 24. janúar. Í allt hefur skíðasvæðið verið opnað 19 sinnum í janúar og stundum síðar. Því má segja að fjallið verði opnað með allra fyrsta móti, hvort sem fólk mun renna sér á tilbúnum snjó eða ekki, “ sagði Guðmundur Karl að lokum.