3. nóvember 2005

Hlíðarfjall opnar á laugardag

 

Vegna hagstæðra veðurskilyrða undanfarið þá er kominn nægur snjó í skíða og snjóbrettabrekkurnar í Hlíðarfjalli. Því verða lyftur opnaðar laugardaginn 5. nóvember nk. Fjarkinn veður opinn frá kl. 10-17, en aðrar lyftur verða síðan opnaðar eftir því sem aðstæður koma til með að breytast til hins betra. Fyrst um sinn verður Fjarkinn opinn laugardag og sunnudag. Áframhaldandi opnunartími ræðst síðan af aðstæðum.

Göngubrautin er búin að vera opin síðan 29. september sl. og er ágætis göngufæri í henni.

Framkvæmdir við uppsetningu snjóframleiðslukerfisins ganga vel þrátt fyrir eindæma lélegt veðurfar. Búið er að leggja um 2200 metra af 2600 metrum af vatns og rafmagnslögnum og framkvæmdir í dæluhúsi ganga vel. Vinna við uppistöðulónið hefur gengið hægar en gert var ráð fyrir sökum bleytu og hefur verið ákveðið að fresta þeim framkvæmdum til næsta sumars. Því verður framleiðsluvatnið fyrir gervisnjóinn tekið úr lækjum í vetur.