21. nóvember 2006:

Mjög gott færi í Fjallinu á fyrsta degi

Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli var opnað almenningi síðastliðinn laugardag, en undanfarnar vikur hefur keppnisfólk verið við æfingar upp í Strýtu. Færið var gott og veðrið frábært til skíða- og brettaiðkunar. Fjölmargir skelltu sér á skíði, bæði á laugardeginum og einnig á sunnudeginum.

Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður svæðisins, segir að almenn ánægja hefði ríkt á svæðinu, enda veðrið gott, lyfturnar opnar frá toppi og niður úr, göngubrautin troðin og skíðafærið frábært alla helgina.

Skíðasvæðið verður opið næst miðvikudaginn 22. nóvember frá kl. 16 til 19.

Starfsfólk skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli vill minna á að vetrarkortin frá í fyrra eru runnin út og því þarf að endurnýja þau fyrir veturinn.