Fréttir: Skíðaveisla á Akureyri um páskana  2002
line_horz.gif (727 bytes)
27. mars 2002:

Sprettganga og samhliðasvig í miðbæ Akureyrar á skírdag

 

Það verður sannkallað skíðafjör í miðbæ Akureyrar á skírdag. Efnt verður til annars vegar sprettskíðagöngu í göngugötunni og síðan tekur við keppni í samhliðasvigi í Gilinu.

Í fyrravetur stóð Skíðafélag Akureyrar fyrir slíkum uppákomum í miðbænum á Akureyri og þóttu þær takast einstaklega vel. Því var ákveðið að endurtaka leikinn í ár og verður keppnin eins og áður segir á skírdag. Keppni í sprettgöngu hefst í göngugötunni á Akureyri klukkan 18 og klukkan 20 verður flautað til leiks í samhliðasvigi í Gilinu. Allir bestu skíðamenn landsins mæta til leiks auk þess sem margar gamlar skíðakempur hyggjast gera þeim yngri skráveifu.

Að sprettgöngunni og samhliðasviginu standa Skíðafélag Akureyrar, Íþrótta- og tómstundaráð Akureyrar, Hlíðarfjall og Landsbanki Íslands. 

 

Fjölskyldudagur Hlíðarfjalls, Skíðafélags Akureyrar og Landsbankans

Laugardaginn 30 mars

 

Skíðaganga:

12:00-15:00     Skíðagöngukennsla fyrir fullorðna. Hún fer fram við gönguhúsið og hefst á heila tímanum. Skráning er ástaðnum og hægt að fá lánuð skíði.

12:00-15:00     Skíðagöngukennsla fyrir börn. Hún fer fram við gönguhúsið og hefst á heila tímanum. Skráning er ástaðnum og hægt að fá lánuð skíði.

12:00-15:00     Gönguskíðaþrautabraut fyrir börn við skíðagönguhúsið.

 

Alpagreinar:

9:30, 10:30 og 16:00    Carvingskíðaskóli. Viltu læra að carva? Ólympíufararnir Dagný Linda Kristjánsdóttir og Kristján Magnússon, ásamt þjálfara Liðsins Guðmundi Sigurjónssyni, kenna þér að carva. Mæting og skráning er við veitingaskálann Strýtu. Kennt verður í 45 mín. í hvert sinn á þremur námskeiðum sem hefjast á ofangreindum tímum. Verð 1000 kr.

10:00               Barnaskíðaskóli Hlíðarfjalls til kl. 14:00. Skráning er í skíðaleigunni í Skíðastöðum.

10:00-13:00     Keppni í samhliðasvigi og verður rásmark efst í Hjallabraut. Skráning á staðnum.

13:00-15:00     Samhliðasvigbrautin opin fyrir almenning. Kepptu t.d. við vin þinn, maka eða börn.

 

Snjóbretti:

10:00-17:00     Snjóbrettagarður norðan við Strýtu.

 

Sleðar – snjóþotur:

11:00-16:00     Sleða- og snjóþotubraut fyrir börn á öllum aldri verður við gönguhúsið.

 

Hlíðarfjall um páskana:

  • Lyftur eru opnar kl. 9:00-17:00 frá fimmtudegi til mánudags.

  • Skíðaleiga er í þjónustumiðstöðinni Skíðastöðum

  • Barnaskíðaskóli á hverjum degi kl. 10:00. Skráning í Skíðastöðum

  • Veitingasala er í Skíðastöðum og Strýtu

  • Sjónvarpsstöðin Aksjón verður með fréttir og upplýsingar úr fjallinu yfir páskana.

  • Almenningsskíðaganga Flugfélags Íslands fer fram við gönguhúsið á páskadag og hefst kl. 14:00

Heimasíða Hlíðarfjalls

 

[ Til baka ]

line_horz.gif (727 bytes)