|
|
|
|
|
![]() |
Ráðstefna um
vetraríþróttir
Vetraríþróttamiðstöð
Íslands (VMÍ) boðar til ráðstefnu 26. og 27. janúar 2006 á Hótel KEA á Akureyri.
Boðið verður upp á veitingar. Ráðstefnugestum er jafnframt boðið á skíði að ráðstefnu lokinni,
frá föstudegi til sunnudags.
Ráðstefnustjóri
verður Viðar Sigurjónsson, starfsmaður ÍSÍ á Akureyri
Fimmtudagur, 26. janúar
Kl. 12:00-13:00 Skráning ráðstefnugesta
og léttur hádegisverður.
Kl. 13:00 Setning - Þórarinn B. Jónsson, formaður stjórnar VMÍ.
Vetrarveður - Einar
Sveinbjörnsson, veðurfræðingur og
áhugamaður um útivist, fjallar um sveiflur undanfarinna ára í íslenskri
vetrarveðráttu og hvert stefni í þeim efnum.
Skautahallir, möguleikar og tækifæri - Hilmar
Björnsson, forstöðumaður Skautahallarinnar
í Laugardal, fjallar um rekstur hallarinnar og möguleika bæjar- og sveitarfélaga
á rekstri skautahalla.
Kaffihlé.
Skíði, skautar og skóli -
Hlýleg fjölskyldusamvera - Gígja
Gunnarsdóttir, verkefnisstjóri hreyfingar hjá Lýðheilsustöð, fjallar um
mikilvægi og möguleika til fjölbreyttra, sameinginlegra hreyfistunda
fjölskyldunnar á veturna.
Kl. 16:30 Hlé.
Kl 17:00-19:00 Skoðunarferð í Skautahöll og Hlíðarfjall. Afhending
skautasleða fyrir fatlaða fer fram í skautahöllinni. Þeir sem vilja geta skellt
sér á skíði að lokinni skoðunarferð.
Föstudagur, 27. janúar
Kl. 09:00 Snjóframleiðsla -
Íþróttir fatlaðra - Möguleikar og tækifæri - Anna Karólína Vilhjálmsdóttir, framkvæmdastjóri Fræðslu- og útbreiðslusviðs Íþróttasambands fatlaðra
og Special Olympics á Íslandi, fjallar um vetraríþróttir fatlaðra og
samstarf við Challenge Aspen í Colorado.
Kaffihlé.
Snjóflóðamál á skíðasvæðum - Harpa Grímsdóttir, forstöðumaður Snjóflóðaseturs Veðurstofu Íslands
á Ísafirði. Harpa er að vinna að snjóflóðahættumati fyrir skíðasvæði landsins
og mun kynna þá vinnu. Rætt verður um áhættuviðmið fyrir skíðalyftur og
skíðaleiðir og snjóflóðaeftirlit á skíðasvæðum. Stuttlega verður fjallað um það
hvernig tekið er á snjóflóðamálum á skíðasvæðum í nokkrum öðrum löndum.
Vetur, íþróttir og ferðaþjónusta – Ásbjörn Björgvinsson, formaður ferðamálasamtaka
Norðurlands eystra, fjallar um vetur og ferðaþjónustu.
Kl. 12:00 Léttur
hádegisverður.
Kl. 14:00 Samantekt og
ráðstefnulok.
Skráning fer fram hjá Ólínu í síma 460 1455. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið olina@akureyri.is.
Gisting: (Öll herbergi eru með sturtu og morgunverðarhlaðborð er innifalið.)
Hótel KEA
Eins manns herbergi, kr. 7.500,-
Tveggja manna herbergi, kr. 9.400,-
Hótel Harpa og Hótel Norðurland
Eins manns herbergi, kr. 6.300,-
Tveggja manna herbergi, kr. 7.900,-
Hægt er að panta
gistingu í síma 460 2000. Taka skal fram að viðkomandi sé að fara á VMÍ
ráðstefnu.