18. október 2006:
Snjóframleiðsla komin í gang í Hlíðarfjalli
Þessa dagana er verið að búa til snjó efst í hlíðum
Hlíðarfjalls en snjóframleiðslan hófst á mánudag og eru fjórar snjóvélar nýttar
til þess líkt og í fyrra.
Guðmundur segir að ef til vill verði
hægt að opna fyrir æfingar í einni brekku efst í fjallinu eftir helgina ef
veður leyfir. Í framhaldinu verði þá hægt að flytja búnaðinn niður fjallið til
þess að hefja snjóframleiðslu þar. Guðmundur segir það fara eftir frostinu
hversu mikið sé hægt að framleiða snjó á dag, en því meira sem frostið er því
betra. Sem dæmi má nefna getur hver snjóbyssa notað á bilinu 100 til 600 lítra
af vatni við snjóframleiðsluna. Sé frostið á bilinu 10-12 stig þá notar byssan
600 lítra af vatni. Nú nota byssurnar aðeins um 180 lítra og eru því að vinna á um 30%
afköstum.
Guðmundur segir að stefnt sé að því að opna skíðasvæðið ekki síðar en í lok nóvember en það fari auðvitað eftir veðri hve stóran hluta af svæðinu verði hægt að opna.