Fréttir: Mikil tilhlökkun hjá skíðafólki
line_horz.gif (727 bytes)
4. desember 2001:

"Ég finn fyrir mikilli tilhlökkun hjá skíðafólki um allt land og það er orðið virkilega spennt að komast til Akureyrar á skíði, enda skapar nýja stólalyftan Hlíðarfjalli nýja stöðu á meðal skíðasvæða hérlendis," segir Guðmundur Karl Jónsson, framkvæmdastjóri VMÍ.

Að hans sögn ganga framkvæmdir við nýju stólalyftuna samkvæmt áætlun en sem kunnugt er hefur verið við það miðað að lyftan væri tilbúin um miðan desember. "Við höfum miðað við 15. desember en það er engin heilög dagsetning því skiljanlega ræðst það svo mikið af veðri og vindum hvernig verkið vinnst. En á þessari stundu er ekkert sem bendir til annars en að upp úr miðjum desember verði uppsetningu lyftunnar lokið. Það er síðan önnur spurning hvenær við getum opnað fyrir almenning og þar hafa snjóalög mikið að segja. Fyrst verðum við auðvitað að prófa lyftuna í einhverja daga en verði veðurguðirnir okkur hagstæðir kemst fólk vonandi á skíði í Hlíðarfjalli fyrir áramót," segir Guðmundur.

Jónas Karlesson frá verkfræðistofu VST, sem annast eftirlit með framkvæmdinni, og Jóhann G. Sigurðsson, formaður stjórnar VMÍ, virða fyrir sér hið nýja mannvirki.

[ Til baka ]