1. febrúar 2006

Vel heppnuð ráðstefna um vetraríþróttir

 

Vetraríþróttamiðstöð Íslands (VMÍ) boðaði til ráðstefnu fimmtudaginn 26. og föstudaginn 27. janúar sl. á Hótel KEA á Akureyri. Fjöldi gesta mætti á ráðstefnuna og hlýddu á fjölmarga forvitnilega fyrirlestra sem þar voru haldnir.

Þórarinn B. Jónsson, formaður stjórnar VMÍ, setti ráðstefnuna en svo tók Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur og áhugamaður um útivist, við og fjallaði um sveiflur undanfarinna ára í íslenskri vetrarveðráttu og hvert stefni í þeim efnum. Næst tók Hilmar Björnsson, forstöðumaður Skautahallarinnar í Laugardal, til máls og fjallaði um rekstur hallarinnar og möguleika bæjar- og sveitarfélaga á rekstri skautahalla. Þau Linda Björk Pálsdóttir, umsjónarmaður skíða- og brettaskólans í Hlíðarfjalli, Viðar Jónsson, framkvæmdastjóri Skautahallarinnar á Akureyri, og Gunnar Gíslason, deildarstjóri skóladeildar Akureyrarkaupstaðar, fjölluðu því næst um verkefnið Skíði, skautar og skóli sem Akureyrarkaupstaður hefur staðið að síðastliðin þrjú ár. Síðasta fyrirlestur dagsins flutti Gígja Gunnarsdóttir, verkefnisstjóri hreyfingar hjá Lýðheilsustöð, þar sem hún fjallaði um mikilvægi og möguleika til fjölbreyttra, sameinginlegra hreyfistunda fjölskyldunnar á veturna.

            Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður VMÍ og Hlíðarfjalls, var fyrstur á mælendaskrá að morgni föstudags. Hann var með fræðslu um snjóframleiðslu og sagði einnig frá snjóframleiðslukerfinu í Hlíðarfjalli. Næst fjallaði Anna Karólína Vilhjálmsdóttir, framkvæmdastjóri Fræðslu- og útbreiðslusviðs Íþróttasambands fatlaðra og Special Olympics á Íslandi, um vetraríþróttir fatlaðra og samstarfið við Challenge Aspen í Colorado. Harpa Grímsdóttir, forstöðumaður Snjóflóðaseturs Veðurstofu Íslands á Ísafirði er að vinna að snjóflóðahættumati fyrir skíðasvæði landsins og kynnti þá vinnu má ráðstefnunni. Hún ræddi m.a. um áhættuviðmið fyrir skíðalyftur og skíðaleiðir og snjóflóðaeftirlit á skíðasvæðum. Einnig fjallaði hún stuttlega um það hvernig tekið er á snjóflóðamálum á skíðasvæðum í nokkrum öðrum löndum. Í síðasta fyrirlestri dagsins fjallaði Ásbjörn Björgvinsson, formaður ferðamálasamtaka Norðurlands eystra, um vetur og ferðaþjónustu. Í lok ráðstefnunar fór Viðar Sigurjónsson ráðstefnustóri með helstu atriði í framsöguerindum ræðumanna, sem hann hafði tekið saman, svo og fyrirspurnir ráðstefnugesta sem voru fjölmargar.

Á fimmtudeginum var farið í skoðunarferð í skautahöllina á Akureyri og í Hlíðarfjall. Í skautahöllinni afhenti Margrét Baldvinsdóttir, f.h. Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands, skautahöllunum á Akureyri og í Reykjavík skautasleða fyrir fatlaða.

 

Smellið á myndirnar til að sjá þær í stærri útgáfu

Þórarinn B. Jónsson, formaður stjórnar VMÍ, setur ráðstefnuna.

Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur og áhugamaður um útivist, segir skíðafólki m.a. þau válegu tíðindi að hitastig sé að hækka í heiminum og geti það gert skíðastöðum á Íslandi erfitt fyrir í framtíðinni.

Hilmar Björnsson, forstöðumaður Skautahallarinnar í Laugardal,  fjallaði um rekstur hallarinnar og möguleika bæjar- og sveitarfélaga á rekstri skautahalla.

Gunnar Gíslason, deildarstjóri skóladeildar Akureyrarkaupstaðar.

Viðar Jónsson, framkvæmdastjóri skautahallar á Akureyri

Linda Björk Pálsdóttir,  umsjónar-maður skíða og brettaskólans í Hlíðarfjalli

Gígja Gunnarsdóttir, verkefnisstjóri hreyfingar hjá Lýðheilsustöð

Í Skautahöll: Viðar Jónsson sýnir áhöld sem notuð eru í krullu, steina ofl.