23. september 2005

Vel gengur þrátt fyrir snjó!

 

Framkvæmdir við uppsetningu snjóframleiðslukerfisins hafa gengið vel þrátt fyrir eindæma lélegt veðurfar. Búið er að leggja um 2100 metra af 2600 metrum af vatns og rafmagnslögnum, eða um 90% af öllum lögnum. Framkvæmdir við dælustöð ganga einnig vel og reiknað er með að hægt verði að setja vélbúnað í dælustöðina um miðjan október. Vinna við uppistöðulónið gengur hægar en gert var ráð fyrir sökum bleytu, en stefnt er að ljúka því verki í lok október.

 

Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður VMÍ og Hlíðarfjalls, segir að framkvæmdir gangi hægt þessa dagana. “Þó svo við viljum hafa sem mestan snjó í fjallinu þá er hann að gera okkur smá óleik núna. Við stefnum þó enn á að opna skíðasvæðið í byrjun desember.”

 

Enn hefur bætt við snjóinn síðan þessi mynd var tekin. (Smellið á myndina til að sjá stærri útgáfu af henni)