Fréttir:
VMÍ á Vetrarsport 2002
![]()
20.
nóvember 2001:
Vetraríþróttamiðstöð Íslands tekur um komandi helgi þátt í útilífssýningunni Vetrarsport 2002 sem haldin er í Íþróttahöllinni á Akureyri. Þar verður kynnt sú góða aðstaða sem Akureyri býður uppá þegar vetraríþróttir eru annars vegar. VMÍ er með veglegan bás á besta stað og eru gestir boðnir velkonir í heimsókn. Sýningin er opin laugardag og sunnudag. |
![]()