Fréttir: Stólalyftan formlega vígð nk. laugardag
line_horz.gif (727 bytes)
Næstkomandi laugardag, 9. febrúar, verður nýja stólalyftan í Hlíðarfjalli formlega vígð og hefst athöfnin kl. 10.30 við lyftuna. Jafnframt verður tilkynnt um nafn á lyftunni. Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður Skíðastaða, segir að ákveðið sé að hafa frítt í lyftuna til hádegis á laugardag og hann hvetur fólk til  þess að koma í fjallið á þessum hátíðisdegi.

Meðal gesta við vígsluna verða að óbreyttu Björn Bjarnason, ráðherra íþróttamála, Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ, Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, og stjórnarmenn Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands. Guðmundur Karl segir að skíðafæri sé prýðilegt í fjallinu. Miklar breytingar urðu á snjóalögum í norðanveðrinu um síðustu helgi og nú er af kappi unnið að því að undirbúa opnun Stromplyftunnar. Það gæti hugsanlega tekist á morgun, miðvikudag, skíða- og brettafólki til ómældrar ánægju.

st_lalyftan039.jpg (98924 bytes)
Nýja stólalyftan í Hlíðarfjalli er fyrsta fjögurra sæta stólalyfta landsins.

[ Til baka ]
line_horz.gif (727 bytes)