7. desember 2005
Vígsla snjóframleiðslukerfisins í
Hlíðarfjalli
Laugardaginn 10. desember nk.
fer fram vígsla á snjóframleiðslukerfnu í
Hlíðarfjalli. Athöfnin sem fer fram við Fjarkann hefst kl. 11:00 og mun
Lúðrasveit Akureyrar leika jólalög. Opið verður í fjallinu milli kl 10.00 og
17.00 og hægt að fara frítt í allar lyftur þennan dag..jpg)
Dagskrá laugardaginn 10. desember
Kl. 10:00-17:00 Skíðasvæðið opið í boði Akureyrarbæjar
Kl. 11:00 Snjóframleiðslukerfið í Hlíðarfjalli vígt
Lúðrasveit Akureyrar leikur jólalög
Kl. 11:30-16:00 Snjóframleiðslubúnaðurinn til sýnis
Kl. 11:30 Veitingar í boði Akureyrarbæjar og
Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands
Kl. 11:45 Almenningssvigkeppni SKA og Útilífs
Kl. 17:00-19:00 After Ski í Strýtu,
(Skíðasúpa og kakó) í boði SKA
Kl. 21:30 Skíðapartý á Vélsmiðjunni á vegum SKA
Snjóframleiðslukerfið
Á árinu hefur verið unnið hörðum höndum að uppsetningu snjóframleiðslukerfisins í Hlíðarfjalli. Kerfið er að gerðinni Sufag og eru slík kerfi í notkun víðsvegar í heiminum. Snjóframleiðslan byggir á að vatni er dælt undir þrýstingi að snjóbyssum, sem síðan þeyta vatninu upp í loft þar sem það kristallast og fellur til jarðar sem snjór. Til að hægt sé að framleiða snjó þarf lofthiti að vera undir frostmarki þ.e. að lágmarki -1°c.
Vatnsöflun: Vatni úr lækjum er veitt í uppistöðulón sem er um 18.000 m3
Dæluhús: Vatninu er dælt með tveimur lágþrýstum dælum í gegn um vatnssíu sem hreinsar vatnið. Þaðan fer svo vatnið í tvær öflugar háþrýstidælur sem geta dælt 4.800 lítrum á mínútu um lagnakerfið.
Lagnakerfið: Vatnslagnir verða um allt fjall alls um 2.600 metra. Búið er að setja upp um 30 tengistúta fyrir snjóbyssur þar sem eru vatnskranar og rafmagnstenglar.
Snjóbyssur: Í fyrsta áfanganum voru keyptar 7 byssur til framleiðslunnar en þær eru færðar á milli tengipunkta með snjótroðara. Hver getur búið til snjó úr allt að 600 lítrum af vatni á mínútu.